Heilbrigðari þú

Aukin vellíðan á 4 vikum

Vertu viss um að þú fáir allar upplýsingar um næstu námskeið. Skráðu þig á biðlista - þú færð upplysingar fljótlega.

Áttu þú þér draum um vellíðan í eigin líkama? Þá gæti þetta fría 4 vikna netnámskeið hentað þér fullkomlega. Ég ætla bjóða þér að uppgötva hvað litlar breytingar í daglegu venjunum okkar hafa mikil áhrif í átt að bættum lífstíl og hærra orkustigi með einföldum og lýsandi leiðbeiningum í mataræði og hreyfingu án allra öfga. Það eina sem þú þarft að gera er að taka ákvörðun! Námskeiðið er valdeflandi jafnt andlega og líkamlega, nærandi fyrir huga, líkama og sál. Taktu fyrsta skrefið í og settu þig í fyrsta sæti. Heilbrigðari og glaðari þú!

Tilvalið fyrir allar konur á aldrinum 35-75 er vilja auka lífsgæðin sín, eru leitandi eftir einföldum ráðum, stuðningi og aðhaldi í umbreytingarferlinu úr vanlíðan í vellíðan. Það er aldrei of seint að hefja vegferðina í átt að bættum lífsstíl. 

Um Gyðu Dís

Gyða Dís er athafnakona, lífstílsþjálfi með mikla ástríðu fyrir því að leiða konur í átt að heilbrigðara líferni með breyttu hugarfari og ástríðu fyrir lífinu sjálfu. Gyða Dís hefur starfað í heilsueflandi samfélagi í 15 ár. Er eigandi á vinsælu jógastúdíó, kennir aðgengilegar og auðveldar leiðir í átt að meiri hamingju og gleði. Heilsa og vellíðan alla leið.

Gyða Dís hefur mikla menntun í jóga- og jóga fræðunum sem og Ayurveda fræðum sem eru systur vísindi jóga. Ayurveda er elsta heilsufræði veraldar hjálpar okkur að ná jafnvægi og góða meltingu. Gyða Dís hóf sína vegferð í átt að heilsusamlegra líferni fyrir 21 ári síðan. Að ná góðri heilsu er ferðalag en ekki áfangastaður, við tökum eitt skref í einu.

Gyða Dís er frjáls frá bólgum, svefnleysi, vefjagigt og orkuleysi, hefur aðstoðað hundruðu kvenna í umbreytingarferlinu. 

heilsa@gydadis.is

© 2024 • www.gydadis.is • Shree Yoga slf.